Púkó að vera ekki umhverfisvænn
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla
Smart er hipp og klókur
Jakob Frímann Magnússon hjá Miðborginni okkar
Umhverfisvænn lífsstíll
Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari, bendir á að umhverfisvænn lífsstíll sé smart
Umhverfið er verðmætt
Sigurður Viðarsson hjá Tryggingamiðstöðinni spyr á móti hvað sé smart við að vera ekki umhverfisvænn?
Konur hafa aflið
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra setur punktinn fyrir aftan Grænan apríl 2012.
Ísland með augum Hollywood
Í ár er von á enn fleiri Hollywood-stjörnum til Íslands en nokkru sinni fyrr. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa borið hróður lands og þjóðar um heimsbyggðina á umliðnum áratugum og slíkt vekur athygli bæði ferðamanna og fagmanna.
Orkuskiptin eru á dagskrá
Í fjármála- og iðnaðarráðuneytinu vinnur Oddný G. Harðardóttir, ráðherra að nýjum orkuskiptum á Íslandi. Við höfum gert þetta áður þegar við skiptum yfir í hitaveitu og eigum fyrir höndum ný orkuskipti úr olíu og bensíni í umhverfisvæna orkugjafa í samgöngum. Fyrst þarf að treysta innviðina og gera veginn klárann áður en brunað er af stað. [...]
Grænt hár
Á hárgreiðslustofum er unnið með lögleg eiturefni, sérstaklega í litun. Þessi efni valda asma og öndunarfærasjúkdómum og jafnvel aukinni tíðni krabbameins hjá hárgreiðslufólki. Sem betur fer er til grænn valkostur þegar kemur að því að líta vel út og fylgja nýjustu tísku í hárstíl og lit. Hárstofan Feima á Óðinsgötu er græn stofa.
Umhverfisvænt glerpússerí
Við þurfum ekki að kaupa rándýra vökva til að hreinsa með gler og spegla á heimilnu. Kolla Í býtinu á Bylgjunni er ástríðufullur og umhverfisvænn glerpússari. Látið hana kenna ykkur kúnstina.
Þekkir þú merkin?
Margir tengja umhverfismerkin fyrst og fremst við hreinlætisvörur á vökvaformi. Það eru hins vegar fjölmargar aðrar vörutegundir, sem eru umhverfismerktar.
Páll Óskar og plastið
Páli Óskari dytti aldrei, aldrei í hug að henda einhverju þar sem hann stendur, eins og svo margir virðast stunda umhugsunarlaust. Páll Óskar hugsar áður en hann flokkar.
Páll Óskar og pappírinn
Páll Óskar er annálað snyrtimenni hvert sem litið er. Hann kynntist fyrst flokkun á ferð sinni til New York árið 1993, þegar hann sá flokkunartunnur á almannafæri í fyrsta sinn.
Grænn starfsframi
Skortur á sérmenntuðu fólki í umhverfisfræðum veldur mikilli eftirspurn. Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands menntar fólk til framtíðar í þeim fræðum.
Blái herinn
Tómas J. Knútsson, atvinnukafari, stofnaði Bláa herinn og hefur á þeim 15 árum, sem liðin eru frá stofnun haft forgöngu um að hreinsa hundruðir tonna af rusli frá ströndum landsins. Hundruðir rafgeyma hafa skilað sér upp úr höfnum í endurvinnslu. Einnig hefur Tómas verið óþreytandi við að virkja ungmennin í kringum sig til starfa og þar með vakið með þeim kærleika fyrir umhverfinu.
Sjálfbærari byggingar
Fimm arkitektastofur í Reykjavík sameinuðust fyrir nokkrum árum um vinnu að rannsóknarverkefni sem þau kalla Betri borgarbragur (bbb.is). Verkefnið verður unnið á þremur árum og hlaut Öndvegisstyrk frá Tækniþróunarsjóði (RANNÍS) í fyrsta sinn sumarið 2009. Að verkefninu standa 5 arkitektastofur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands. Arkitektastofurnar eru Arkitektúra, ASK arkitektar, Gláma Kím arkitektar, Hús og skipulag, Kanon arkitektar og Teiknistofan Tröð.
Komdu heilsunni í lag
Vörurnar frá Heilsu fást í öllum heilsubúðum, apótekum og helstu matvöruverslunum á Íslandi. Þórarinn Þórhallsson er framkvæmdastjóri Heilsu og hefur sjálfur skipt yfir í hreinlætisvörur úr jurtaríkinu eftir að fjölgaði á heimilinu.
Fötin eru bara notuð í þrjá mánuði
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Stöð 2, kaupir notuð föt á Barnalandi eða annars staðar þar sem hægt er að versla notað.
Borgarstjóri á hjóli
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr elskar hjólið sitt og nýtir það eins oft og hann getur.
Hvað verður um ruslið okkar?
SORPA hefur séð um ruslið okkar í meira en tvo áratugi. Markmiðið er að auka endurvinnslu og endurnotkun. Endurvinnslustöðvarnar taka við úrgangi, þar sem hægt er að flokka í allt að 25 flokka og skila inn flöskum og dósum og fá pening fyrir. En það eru ekki bara skilagjöld til einstaklinga sem eru fjármunir þegar ruslið okkar er annars vegar.
Vísað á sóffan
Tobba Marinós hefur upplifað að vera vísað á sóffan vegna vitlausrar flokkunar. Toppið það!
Orkudrykkur á 90 sek.
Við gleymum stundum að elska frumurnar okkar alveg inn að kjarna. Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri í Lifandi markaði sýnir hvernig hægt er að búa til einfaldan og náttúrulegan orkudrykk, sem fær frumurnar til að hoppa af gleði.
Málið leyst
Pappír er líka verðmæti þegar hann hefur lokið sínu hlutverki. Ólafur Þ. Stephensen er ritstjóri Fréttablaðsins og upplýsir hér hvernig hann leysir pappírsmálin í sínum húsum.
Rifjum upp gildin
Ungt fólk sem er að byrja að móta sínar fjölskyldur vill vera í meiri sátt við samfélagið, náttúruna og umhverfið en sú kynslóð, sem hefur markað spor sín með ofneyslu. Eldri kynslóðirnar kunna nýtni og nægjusemi. Lærum af kynslóðunum sitt hvoru megin við okkur og stígum gæfuskref fyrir jörðina.
Vatn lífsins
Sölvi Tryggvason þekkir á eigin skinni muninn á því að hafa aðgang að góðu vatni eins og við höfum hér dags daglega og svo að vera í umhverfi þar sem snertingin ein við vatnið getur skotið manni skelk í bringu.
Kía Ríó – viku síðar
Vala Matt raðprófar Kia bíla í Grænum apríl. Hún hefur ekið allra sparneytnasta bílnum, Kía Ríó í viku. Ríóinn eyðir að jafnaði 3,2 lítrum í blönduðum akstri og fær frítt í bílastæði í Reykjavík 90 mín. í senn. Vala hefur ekið bílnum í bæjarumferðinni, en líka farið út á land – og ekki tekið eldsneyti [...]
Gamalt er gott!
Anna Svava Knútsdóttir, leikkona er sérlega góð við umhverfið að einu leyti. Hún endurnýtir gamalt, sérstaklega húsgögn og allt til heimilisins.
Færri bílar í umferð?
Ein gatnamót í Reykjavík taka yfir megið af miðbænum þegar grannt er skoðað. Ættu kannski færri bílar að vera í umferðinni?
Olís í græna gírnum
Olíuverzlun Íslands eða Olís, rekur eins og kunnugt er fjölda þjónustustöðva undir vörumerki Olís ásamt sjálfsafgreiðslustöðvum undir vörumerki ÓB – ódýrt bensín um land allt. Færri velta því kannski fyrir sér að Olís hefur um langt árabil tekið þátt í ýmsum umhverfisverkefnum, meðal annars skógrækt og uppgræðslu.
Páll Óskar syngjandi grænn og sæll
Grænn apríl varð þess heiðurs aðnjótandi að Páll Óskar afhjúpaði snyrtivöruhylluna sína – og þið njótið svo sannarlega góðs af.
Hjóla og spara
Bergþór Pálsson, söngvari og Albert Eiríksson, framkvæmdastjóri, eru meðal þeirra, sem við sjáum í umferðinni dags daglega á hjóli.
Servida Besta hafa stigið græna skrefið
Miklu máli skiptir hvers konar vörur eru notaðar við þrifin. Umhverfisvænar vörur draga úr óæskilegum áhrifum á umhverfi og heilsu og eru því bæði betri og öruggari kostur. Servida og Besta leggur áherslu á að bjóða uppá umhverfisvænar vörur, sem bera vottun á borð við Svaninn, Green Seal, evrópska blómið, sænsku svöluna og bláa engilinn.
Að leika verndarleikinn
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er dagskrárgerðarmaður á Stöð 2. Henni þótti ekkert eðlilegra þegar hún var lítil en að lokka vinkonurnar út í leikinn “vernd”. Hann fólst í því að tína upp ruslið í hverfinu.
Græn skref Reykjavíkurborgar
Rekstur stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar á að vera til fyrirmyndar. Verkefnið er að feta veginn í átt til betri framtíðar. Ríflega 30 fyrirtæki hafa þegar stigið grænu skrefin í Reykjavík og eru aðrir hvattir til að fylgja í kjölfarið.
Vala Matt prófar Ríó
Kia Rio eyðir álíka miklu og garðsláttuvél og hægt er að leggja honum frítt í bílastæði í Reykjavík í 90 mín. í senn. Vala Matt athugar hvort allar staðhæfingarnar um ágætið fái staðist.
Keyra á frönskum
Simmi og Jói eru stoltir yfir þeim árangri, sem Hamborgarafabrikkan hefur nú þegar náð í umhverfismálum, m.a. með flokkun á lífrænum úrgangi. Þeir ætla að halda ótrauðir áfram og komast í fremstu röð fyrirtækja hvað varðar umhverifsstefnu og framkvæmd hennar.
Vistvæn íbúð í IKEA
IKEA hefur í tilefni af Grænum apríl innréttað sérstaklega einstaklingsíbúð með vistvænum lausnum á einum stað og ábendingum um umhverfisvænni hversdag.
Játning Veru
Vera Sölvadóttir er kvikmyndagerðarmaður og dagskrárgerðarmaður á RÚV. Hún er einn umsjónarmanna Djöflaeyjunnar og stundar á sumrin leiðsögumennsku með erlenda ferðamenn. Hún er í Græna her Græns apríl.
Grand Hótel Reykjavík er Svansvottað hótel
Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hlaut á dögunum umhverfismerki
Svansins.
Á Grand Hóteli Reykjavík er lögð áhersla á persónulega og vinalega þjónustu og hótelið er afar
fjölskylduvænt.
Tími til að nýta
Þorvaldur Davíð Kristjánsson er eini íslendingurinn sem hefur útskrifast úr leiklistardeild hins þekkta bandaríska listaskóla, Julliard. Hann er í Græna hernum og hugar sérstaklega að því hvernig er hægt að nýta það sem þegar hefur verið framleitt.
LIFANDI markaður – grænn alla daga
LIFANDI markaður rekur matvöruverslanir og veitingastaði með eingöngu heilnæmar og að mestu leyti lífrænar vörur.
Á 14 lítrum til Akureyrar
Litlir bensínbílar sem eyða litlu eru eins og staðan er nú hagkvæmari en t.d. rafbílar í sama stærðarflokki vegna verðsins. En mun fleiri sparneytnir bílar eru nú í bílaflota landsmanna en fyrir nokkrum árum. Nýskráðir bílar eyða að meðaltali 2-3 lítrum minna af eldsneyti en þeir sem fyrir voru. Þetta sparar þjóðarbúinu verulegar upphæðir.
1. apríl í Kringlunni
Grænn apríl 2012 hófst í Kringlunni sunnudaginn 1. apríl. Gestir Kringlunnar kynntu sér í gleði og ákafa græna vöru, þekkingu og þjónustu, sem þátttakendur í Grænum apríl bjóða uppá, en nokkrir þeirra voru einnig á staðnum. Íslenska Gámafélagið veitti Kringlunni viðurkenningu fyrir framsýnt umhverfisstarf og Guðrún G. Bergmann, setti átakið. Taktu þátt í grænu umræðunni [...]
Samgöngusamningur er allra hagur
Við höfum sniðið umhverfið okkar að einkabílnum. Það kostar samfélagið að halda slíku úti, til dæmis með uppsetningu bílastæða.
Stolt af umhverfisvinnunni
„Starfsmenn Reykjavík Natura eru stoltir af því að undanfarið ár hefur undirbúningsvinna átt sér stað til þess að innleiða umhverfistaðalinn ISO 14001,“ segir Sólborg Steinþórsdóttir hótelstjóri. „Undirbúningsvinnunni fer senn að ljúka en vottunin nær yfir stefnumótum, markmiðasetningu, framkvæmd og eftirlit allra umhvefisþátta sem fyrirtækið getur stýrt eða haft áhrif á.
Sameignin okkar
Allt verður miklu betra ef við göngum betur um stóru sameignina okkar þarna úti, segir Ellen R. Kristjánsdóttir, tónlistarmaður.
Græn bílalán Ergo
Brynjólfur Snorrason, ráðgjafi hjá Ergo leiðir okkur í allan sannleik um græn bílalán Ergo, bæði
til nýrra og eldri bíla.
Ergo, sem er fjármögnunardeild Íslandsbanka, er stolt að hafa verið fyrst til að kynna græn
bílalán á íslenskum markaði. Grænu bílalánin hafa hlotið frábærar viðtökur og margir nýtt sér
þau.
100 eiturefni fyrir morgunmat
Venjuleg kona er að öllu jöfnu búin að setja framan í sig 100 kemisk efni fyrir morgunmat. Efni, sem trufla hormónabúskapinn, valda krabbameini og eru okkur skaðleg á margvíslegan hátt. Edda Björgvinsdóttir, leikkona er mikil áhugamanneskja um þessi mál. Hún er t.d. ekki til í að bera rottueitur í andlitið á sér í formi augnskugga eða maskara.
Ergo í grænu umhverfi
Ásthildur Kristjánsdóttir, forstöðumaður Ergo, segir frá því að við nafnabreytingu í Ergo sumarið 2011 var ekki bara lögð áhersla á græna stefnu í bílafjármögnun heldur einnig grænar áherslur hjá félaginu sjálfu. Var það haft að leiðarljósi við flutning starfseminnar á Suðurlandsbraut 14 og í vöruþróun félagsins.
GRÆNIR HÆLAR í samvinnu við EarthCheck
Stutt er síðan GRÆNIR HÆLAR tóku að sér að vera umboðsaðilar EarthCheck á Íslandi, en eigandi fyrirtækisins Guðrún Bergmann hefur þó verið tengd þessu umhverfisvottunarmerki allt frá árinu 1999, meðan það enn hét Green Globe.
Frumkvöðlar á Metanbíl
Þegar síðustu hækkanir á eldsneyti eru hafðar í huga er um að gera að kanna allar leiðir til sparnaðar og ekki sakar að geta bætt andrúmsloftið í leiðinni. Það er virkilega vit í því að aka á metani og velja að nota peningana í eitthvað skemmtilegra.
500 þúsund í skilagjöld
Á rúmum tveimur árum hafa íbúar húsanna á Völdunarreit skilað flöskum og dósum fyrir ríflega hálfa milljón. Og nú bætast meira en 200 þúsund í pottinn. Peningarnir fara beint í að fegra og bæta umhverfi íbúanna.
Metanorka kortleggur Ísland
Metanorka vinnur að kortlagningu á helstu möguleikum metanvinnslu úr lífrænu afganshráefni á Íslandi og er reiknað með að niðurstöður liggi fyrir nú í vor.
Hótel Hellnar, platinum
Hótel Hellnar gekk til liðs við umhverfisvottunarsamtökin Green Globe árið 2000 og hlaut vottun frá þeim árið 2002, en nafni Green Globe var fyrir nokkru breytt í EarthCheck. Hótelið er tekið úr árlega og við úttekt á árinu 2012 er gert ráð fyrir að það hljóti Platinum vottun frá EarthCheck, fyrst allra hótela í Evrópu, en það hljóta þau fyrirtæki sem hafa verið vottuð í 10 ár.
Andrúmsloftið er jafn þunnt og laukhýði
Andrúmsloft jarðar er þynnra en við kannski veltum fyrir okkur dags daglega. Svona álíka þykkt og leiðin frá miðbæ Reykjavíkur uppí Mosfellsbæ.
Flokkun er ekki flókin
Flokkun vefst fyrir sumum, en Hrund Ólöf Andradóttir, dósent í umhverfisverkfræði við Verkfræði og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands útskýrir á einfaldan hátt hvernig flokkun á úrgangi fer fram á sviðinu
Ellen segir sögu af góðri umgengni
Við leggjum allt kapp á að taka til heima hjá okkur, en stundum er eins og þrifskynið hverfi þegar gengið er út um dyrnar
Ómar Ragnarsson er ekki lengur “fjallheimskur”
Fornmenn sögðu að þeir væru heimskir, sem sæju veröldina einungis af bæjarhólnum heimanfrá. Ómar Ragnarsson hætti að vera heimskur fyrir 13 árum síðan
Páll Óskar með græna fingur
Í gamla daga áttum við svo fallegan bakgarð á Sólvallagötunni, þar sem nágrannarnir voru í samkeppni um það hver var með flottasta garðinn. Ég er búinn að vera mjög duglegur undanfarin ár að endurvinna og endurnýta
Jón Gnarr – Okkur má ekki vera sama!
Reykjavík, sem borg hefur möguleika, sem aðrar borgir hafa ekki séns í, við höfum möguleika á að geta orðið, ef við tækjum höndum saman, hreinasta og grænasta borg í heimi.
Endurvinnsluþorp Íslenska Gámafélagsins
Hugmynd Íslenska Gámafélagsins um Endurvinnsluþorp á svæði gömlu áburðarverksmiðjunnar á vaxandi gengi að fagna. Þar er nú að finna fjölmörg fyrirtæki, sem vinna gjaldeyri úr rusli – og enn er hægt að fjölga fyrirtækjum í þorpinu.
Uppskriftasamkeppni, allir geta tekið þátt
Lumar þú á vinningsuppskriftinni? Taktu endilega þátt í keppninni.
Blaðberinn er falleg og nytsamleg hönnun
Fréttablaðið lét á sínum tíma hanna Blaðberann, sem er falleg og nytsamleg hönnun, allt frá lestri til þess að koma blöðunum í endurvinnslu. Og frábæru fréttirnar eru að enn eru til 10 þúsund Blaðberar. Fyrstir koma, fyrstir fá, í Skaftahlíðinni.
SORPA sorterar
Markmið SORPU snýst um aukna endurvinnslu og endurnotkun. Frá fyrsta starfsdegi breytt Efnamóttakan miklu í rétta átt og bæði Metan og Góði hirðirinn hafa gengið glimrandi vel. Góði hirðirinn er rekinn í samvinnu við líknarfélögin og er óhætt að segja að Góði hirðirinn hafi leyst þörf, sem var fyrir hendi – að koma góðum hlutum áfram til nýrra eiganda. Góði hirðirinn var nýverið tilnefndur til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins.
Segðu mér – hvað kom fyrir heiminn?
Þegar átakið GRÆNN APRÍL var í undirbúningi kom fram hugmynd um að gera lag sem tengdist því. Með lagi var verið að hugsa um að ná athygli unga fólksins. Beinast lá við að hafa samband við 15 ára rappara Ólaf Gunnar Daníelsson, sem tengdur er einum af verkefnisstjórunum. Hann fékk drög að texta í hendurnar, en fannst hann ekki nógu áhrifamikill svo hann bjó til sinn eiginn. Afraksturinn er lagið og textinn Segðu mér – hvað kom fyrir heiminn?
Vottun tryggir gæði
Sturlaugur Þór Halldórsson er sölu og markaðsstjóri hjá Bros. Bros er ISO vottað fyrirtæki samkvæmt staðli 9001 og í því verkefni felst að öll verkefni eru unnin samkvæmt ákveðnum verkferlum. Um það bil 30 íslensk fyrirtæki eru nú vottuð samkvæmt ISO 9001.
1 cent fyrir framtíðina
Græni Hlekkurinn flytur inn epli frá Suður-Ameríku í samstarfi við Eosta í Hollandi og eplabóndann í Argentínu. Eplin tengjast verkefni, sem heitir 1 cent for the future. Markmið verkefnisins er að aðstoða fötluð börn í samfélagi eplabóndans. Á síðasta ári söfnuðust 8.000 evrur í verkefnið, þar af 1.200 á Íslandi.
Klárast alltaf áður en næsta sending kemur
Bændur í bænum er markaður Græna Hlekksins í Nethyl 2C, Reykjavík. Þar er að finna úrval lífrænna matvæla, bæði íslenskra og erlendra. Þægilegt er að geta verslað lífrænt á netinu en Græni Hlekkurinn rekur netverslunina graenihlekkurinn.is.
Vottunarkerfin eru vinnutæki Eldingar
Elding Hvalaskoðun Reykjavík sérhæfir sig í afþreyingu á sjó. Eva María Þórarinsdóttir Lange, markaðsstjóri, segir okkur frá umhverfismarkmiðum Eldingar.
Við þekkjum nærumhverfið
Hjá Ferðaþjónustu bænda höfum við fylgt umhverfisstefnu í mörg ár. Sagan og menningin eru gullmolar. Við höfum áhrif á umhverfið og þurfum að draga úr umhverfisáhrifum, flokka, kaupa umhverfisvæn efni og vörur. Draga fram það góða og fallega í umhverfinu okkar. Okkar félagar gera það.
Matur, sem manni verður gott af
Nings hefur boðið uppá heilsurétti í 10 ár. Í réttina er eingöngu notað heilt og gott korn, kryddað með fersku grænmeti og kryddjurtum, eins og chili, engifer og hvítlauk. “Þetta er matur sem manni verður vel af,” segir Bjarni Óskarsson eigandi Nings.
Eigum við að halda svona áfram?
Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona, hefur séð tímana tvenna, enda komin yfir áttrætt. Hún er enn þann dag í dag ötull baráttumaður fyrir náttúru Íslands. Hennar stærsta áhyggjuefni er gróðureyðingin á landinu og í smíðum er heimildamynd fyrir sjónvarp um það málefni. Herdís spyr nærgöngulla spurninga í þessu myndbandi. “Hvernig gátum við farið svona með landið á ekki lengri tíma?”
Íbúarnir gera kröfur
Snæfellsnes er fyrsta landsvæðið í Evrópu sem fær umhverfisvottun Green Globe-samtakanna og það fjórða í heiminum. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir undirbúningsferlið hafi krafist mikillar vinnu, enda sveitarfélögunum settar strangar kröfur til að fá slíka alþjóðlega vottun.
Hefur tínt upp 250 kíló af rusli
Þórdís er með áráttu fyrir tölum og hefur haldið til haga hversu mikið magn af rusli hún hefur tínt upp af götu sinni á einu og hálfu ári. 250 kíló eða 1/4 úr tonni er það magn, sem Þórdís hefur tínt saman, borið heim, komið í flokkun og urðun. Þetta sýnir að við getum hvert og eitt breytt heiminum í kringum okkur.
Hybridbíllinn er 110 ára!
Á síðasta ári samþykkti Alþingi ný vörugjöld fyrir bifreiðar, sem þýðir að bílar sem eru að menga minna og eyða minna, þeir lækkuðu í verði. Með hækkandi bensínverði hafa margir bíleigendur fengið spark í rassinn, en mest seldi bíllinn hjá Bílabúð Benna um þessar mundir er einmitt sparneytinn Chevrolet Spark.
Kaffitár sparaði 40% í urðunarkostnað
Sumir halda að það að vera umhverfisvænn sé bæði dýrt og óþægilegt. Kaffitár hefur allt aðra sögu að segja. Þar spöruðust 40% í urðunarkostnaði við flokkun og starfsfólkið fylltist stolti yfir því að vinna hjá umhverfisvænu og Svansvottuðu fyrirtæki.
Maður og náttúra eru eitt!
“Verkefnið okkar er að vera áfram frumkvöðull í umhverfismálum. Við erum að nýta náttúruna, en á meðvitaðan hátt. Maður og náttúra eru eitt!” Þetta segir forseti bæjarstjórnar í Grundarfirði, Sigurborg Kr. Hannesdóttir.
Komum okkur upp úr ruslatunnunni!
Gyða Steinsdóttir er bæjarstjóri í Stykkishólmsbæ. Stykkishólmsbær er grænjaxl og þar eru dregnir að húni bæði grænir og bláir fánar.
Umbúðalaust frá Mörtu Maríu
Við innkaupin hugar Marta María að því hvað er utan um matinn, sem fer í innkaupakörfuna – og segir okkur umbúðalaust frá sinni skoðun á því.
Þingið tekur Grænum apríl fagnandi
Þingmenn, ráðherrar og starfsfólk Alþingis tóku fagnandi við merki Græns apríl, fimmtudaginn 31. mars. Þetta var upphafið að átakinu, sem stendur allan mánuðinn.
Þvottaefni er ekki sama og þvottaefni
Lesið vel innihaldslýsingar áður en þvottaefni og mýkingarefni eru sett í innkaupakörfuna. Og hvað þurfum við eiginlega að nota mikið þvottaduft hverju sinni?
Gerplur eru grænar fyrirmyndir
Gerplustúlkurnar hugsa ekki einungis vel um líkama og framkomu, þær gera einnig sitt dags daglega til að gera umhverfið grænna og vænna.
Með ánægju komumst við áfram í rétta átt
Við höfum öll áhrif á umhverfið. Neyslan skiptir gríðalega miklu máli. Við sem erum svo heppin að búa á Íslandi verðum að vera í fararbroddi að taka litlu skrefin í rétta átt að sjálfbærni og hætta að henda og menga. Nýta auðlindirnar af virðingu.
Borgar 33% minna fyrir rafmagnið
Þórdís G. Arthúrsdóttir skipti rafmagnsreikningum út fyrir margt skemmtilegra.
Pokinn góði, sem allt kemst í
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, ritstjóri Íslands í dag hefur hugann við umhverfið alla daga ársins. Það gildir líka þegar hún fer og verslar í matinn.
Tolli skilar til framtíðar
Myndlistrmaðurinn Tolli velur fosfórfría framtíð fyrir börn sín og barnabörn.
Förum upp úr hjólförunum
Á skrifstofum Umhverfisráðuneytisins eru ekki ruslafötur. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra sviptir hulunni af því fyrirkomulagi.
Solla pakkar í grænar umbúðir
Solla græna ræður ríkjum á Gló í Listhúsinu, Engjateig 19, Laugardal. Solla er eins og alþjóð veit, mikil áhugakona um grænan og töff lífsstíl. Hér fjallar hún um umbúðir, sem verða að mold að notkun lokinni.
Jafnvægi í náttúrulegu mataræði
Bardagamaðurinn Gunnar Nelson er á heimsmælikvarða í íþrótt sinni. Hann trúir því að maturinn sé hans megin og hugsar mikið um hvað fer á diskinn.
Agnes sparar með metanbílnum
Agnes Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs hjá Íslenska Gámafélaginu
Tökum fötin eins og þau koma fyrir
Valgerður Matthíasdóttir hefur hugsað mikið um af hverju við erum að burðast með plast og aukaherðatré í hvert skipti, sem við sækjum fötin okkar í hreinsun.
Náttúran gefur góð ráð!
Natturan.is gefur góð ráð í grænum aprílmánuði og algjörlega ókeypis.
Græn og gorgeous
Veistu að þú setur stundum rottueitur í andlitið án þess að vilja það?
Hin eilífa saga plastpokans
Plast, varir að eilífu eða þar um bil. Hvernig ætli það sé að vera plastpoki? Myndbandið veitir innsýn í það.








