Púkó að vera ekki umhverfisvænn
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla
Smart er hipp og klókur
Jakob Frímann Magnússon hjá Miðborginni okkar
Umhverfisvænn lífsstíll
Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari, bendir á að umhverfisvænn lífsstíll sé smart
Umhverfið er verðmætt
Sigurður Viðarsson hjá Tryggingamiðstöðinni spyr á móti hvað sé smart við að vera ekki umhverfisvænn?
Konur hafa aflið
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra setur punktinn fyrir aftan Grænan apríl 2012.
Þekkir þú merkin?
Margir tengja umhverfismerkin fyrst og fremst við hreinlætisvörur á vökvaformi. Það eru hins vegar fjölmargar aðrar vörutegundir, sem eru umhverfismerktar.
Grænn starfsframi
Skortur á sérmenntuðu fólki í umhverfisfræðum veldur mikilli eftirspurn. Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands menntar fólk til framtíðar í þeim fræðum.
Sjálfbærari byggingar
Fimm arkitektastofur í Reykjavík sameinuðust fyrir nokkrum árum um vinnu að rannsóknarverkefni sem þau kalla Betri borgarbragur (bbb.is). Verkefnið verður unnið á þremur árum og hlaut Öndvegisstyrk frá Tækniþróunarsjóði (RANNÍS) í fyrsta sinn sumarið 2009. Að verkefninu standa 5 arkitektastofur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands. Arkitektastofurnar eru Arkitektúra, ASK arkitektar, Gláma Kím arkitektar, Hús og skipulag, Kanon arkitektar og Teiknistofan Tröð.
Reykjavíkurborg sækir ruslið!
Á sunnudag, Degi jarðar, þegar við fjölmennum út á strætim, torg og bersvæði borgarinnar kl.12.30 – eru bæði Sorpa og starfsmenn hreinsunardeildarinnar á vaktinni.
Komdu heilsunni í lag
Vörurnar frá Heilsu fást í öllum heilsubúðum, apótekum og helstu matvöruverslunum á Íslandi. Þórarinn Þórhallsson er framkvæmdastjóri Heilsu og hefur sjálfur skipt yfir í hreinlætisvörur úr jurtaríkinu eftir að fjölgaði á heimilinu.
Borgarstjóri á hjóli
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr elskar hjólið sitt og nýtir það eins oft og hann getur.
Hvað verður um ruslið okkar?
SORPA hefur séð um ruslið okkar í meira en tvo áratugi. Markmiðið er að auka endurvinnslu og endurnotkun. Endurvinnslustöðvarnar taka við úrgangi, þar sem hægt er að flokka í allt að 25 flokka og skila inn flöskum og dósum og fá pening fyrir. En það eru ekki bara skilagjöld til einstaklinga sem eru fjármunir þegar ruslið okkar er annars vegar.
Orkudrykkur á 90 sek.
Við gleymum stundum að elska frumurnar okkar alveg inn að kjarna. Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri í Lifandi markaði sýnir hvernig hægt er að búa til einfaldan og náttúrulegan orkudrykk, sem fær frumurnar til að hoppa af gleði.
Sjálfbært skipulag – Dæmi Háskólasvæðið
Kreppan þrýstir á um sjálfbærnihugsun því fólk hefur minni tekjur og bensínverð hefur hækkað. Margir veigra sig því við löngum akstursleiðum, t.d. frá úthverfunum, og vilja frekar búa miðlægt. Til að geta dregið úr akstri og mætt óskinni um að búa miðlægt þarf að stefna að skipulagi sem eykur þéttleika í eldri hluta Reykjavíkur og leyfa meiri blöndun , t.d. með byggingu íbúðarhúsnæðis nálægt stórum vinnustöðum, eins og t.d. á Háskólasvæðinu. Þetta mundi minnka bílaumferð á Hringbraut og innan svæðins, fækka bílastæðum og spara fólki tíma.
Facebook leikur í Grænum Apríl
Þú getur auðveldlega unnið í Facebook leik átaksins Grænn apríl. Kynntu þér reglurnar og vertu endilega með.
Barnamenningarhátíð í Reykjavík
Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 17.-22. apríl 2012. Þema hátíðarinnar er Uppspretta og endurspeglast það með ólíkum hætti í tæplega 200 viðburðum sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu!
Vistvænar byggingar og fleira áhugavert í Dokkunni
Dokkan stendur fyrir málþingi um vistvænar byggingar, samgöngur og umhverfisstaðla þriðjudag 17.
apríl.
Málþingið fer fram á Háskólatorgi H.Í. í stofu 101 og stendur frá kl. 08:30-11:30
Rifjum upp gildin
Ungt fólk sem er að byrja að móta sínar fjölskyldur vill vera í meiri sátt við samfélagið, náttúruna og umhverfið en sú kynslóð, sem hefur markað spor sín með ofneyslu. Eldri kynslóðirnar kunna nýtni og nægjusemi. Lærum af kynslóðunum sitt hvoru megin við okkur og stígum gæfuskref fyrir jörðina.
Grænt skrifstofuhald
Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar eru áhugaverð fyrir þau fyrirtæki innan borgarinnar, sem ekki hafa þegar skráð sig í verkefnið, fyrir birgja borgarinnar og önnur fyrirtæki, sem vilja stíga fyrstu grænu skrefin í skrifstofuhaldi sínu.
Kía Ríó – viku síðar
Vala Matt raðprófar Kia bíla í Grænum apríl. Hún hefur ekið allra sparneytnasta bílnum, Kía Ríó í viku. Ríóinn eyðir að jafnaði 3,2 lítrum í blönduðum akstri og fær frítt í bílastæði í Reykjavík 90 mín. í senn. Vala hefur ekið bílnum í bæjarumferðinni, en líka farið út á land – og ekki tekið eldsneyti [...]
Færri bílar í umferð?
Ein gatnamót í Reykjavík taka yfir megið af miðbænum þegar grannt er skoðað. Ættu kannski færri bílar að vera í umferðinni?
Olís í græna gírnum
Olíuverzlun Íslands eða Olís, rekur eins og kunnugt er fjölda þjónustustöðva undir vörumerki Olís ásamt sjálfsafgreiðslustöðvum undir vörumerki ÓB – ódýrt bensín um land allt. Færri velta því kannski fyrir sér að Olís hefur um langt árabil tekið þátt í ýmsum umhverfisverkefnum, meðal annars skógrækt og uppgræðslu.
Grænn apríl – sérblað
Morgunblaðið hefur nú í tvígang gefið út sérblaðið Grænn apríl. Ef þú hefur ekki séð það í pappírsformi gefst þér tækifæri á að lesa það hér á netinu með því að smella þér áfram.
9 leiðir til lífsorku
Salka gefur út nýja bók með metsöluhöfundinum Þorbjörgu Hafsteinsdóttur.
Af því tilefni efnir Lifandi markaður til útgáfugleði fimmtudaginn 12. apríl, í Borgartúni 24.
Græni Skjárinn
Skjárinn tekur þátt í Grænum apríl og sendir út Græna herinn okkar. Þetta eru “örþættir” sem sýndir eru mánudaga til föstudaga allan aprílmánuð í opinni dagskrá á undan American Funniest Homevideos, sem fer í loftið um kl. 18.
Græna Séð og heyrt
Séð og heyrt er skærgrænt í aprílmánuði. Toppurinn á blaðinu, sem að öllu jöfnu er rauður er nú grænn til að minna á átakið.
Servida Besta hafa stigið græna skrefið
Miklu máli skiptir hvers konar vörur eru notaðar við þrifin. Umhverfisvænar vörur draga úr óæskilegum áhrifum á umhverfi og heilsu og eru því bæði betri og öruggari kostur. Servida og Besta leggur áherslu á að bjóða uppá umhverfisvænar vörur, sem bera vottun á borð við Svaninn, Green Seal, evrópska blómið, sænsku svöluna og bláa engilinn.
Græn skref Reykjavíkurborgar
Rekstur stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar á að vera til fyrirmyndar. Verkefnið er að feta veginn í átt til betri framtíðar. Ríflega 30 fyrirtæki hafa þegar stigið grænu skrefin í Reykjavík og eru aðrir hvattir til að fylgja í kjölfarið.
Hagkaup – fókus á grænt
Hagkaup setur í Grænum apríl fókus á umhverfisvænar og lífrænar vörur.
Eigið ávaxtatré
Þú getur ræktað þín eigin; epli, plómur, perur og kirsuber.
Vistvæn íbúð í IKEA
IKEA hefur í tilefni af Grænum apríl innréttað sérstaklega einstaklingsíbúð með vistvænum lausnum á einum stað og ábendingum um umhverfisvænni hversdag.
Grand Hótel Reykjavík er Svansvottað hótel
Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hlaut á dögunum umhverfismerki
Svansins.
Á Grand Hóteli Reykjavík er lögð áhersla á persónulega og vinalega þjónustu og hótelið er afar
fjölskylduvænt.
Prentmet – stígur græna skrefið til fulls
Prentmet hefur fengið Norræna umhverfismerkið Svaninn sem vottun fyrir umhverfisvæna framleiðslu prentgripa.
Fjórðungur starfsmanna hjólar
Starfsmenn Mennta- og menningarmálaráðuneytisins eru duglegir við að nota reiðhjól til að komast til vinnu sinnar og nokkrir þeirra hjóla allan ársins hring, hvernig sem viðrar.
Heilsuhúsið – heimilisvörur án eiturefna
Loksins umhverfisvænar heimilisvörur lausar við eiturefni – “If you care” er ný vörulína í Heilsuhúsinu. Úrval umhverfisvænna vara eykst sífellt. Nú má fá einnig fá heilsusamlegar vörur til heimilisnota, vörur eins og bréfpoka undir nestið, bökunarpappír, kaffipoka, álpappír og pappírsform undir formkökur.
Glóandi hollt
Veitingastaðurinn Gló í Listhúsinu í Laugardal býður uppá heilsusamlegan og hollan mat bæði til að taka með heim.
Náttúruvernd í verki
Á hverjum degi leggja farþegar Strætó bs. sitt af mörkum til að draga úr mengun og stuðla að hreinni og betri framtíð.
LIFANDI markaður – grænn alla daga
LIFANDI markaður rekur matvöruverslanir og veitingastaði með eingöngu heilnæmar og að mestu leyti lífrænar vörur.
Á 14 lítrum til Akureyrar
Litlir bensínbílar sem eyða litlu eru eins og staðan er nú hagkvæmari en t.d. rafbílar í sama stærðarflokki vegna verðsins. En mun fleiri sparneytnir bílar eru nú í bílaflota landsmanna en fyrir nokkrum árum. Nýskráðir bílar eyða að meðaltali 2-3 lítrum minna af eldsneyti en þeir sem fyrir voru. Þetta sparar þjóðarbúinu verulegar upphæðir.
1. apríl í Kringlunni
Grænn apríl 2012 hófst í Kringlunni sunnudaginn 1. apríl. Gestir Kringlunnar kynntu sér í gleði og ákafa græna vöru, þekkingu og þjónustu, sem þátttakendur í Grænum apríl bjóða uppá, en nokkrir þeirra voru einnig á staðnum. Íslenska Gámafélagið veitti Kringlunni viðurkenningu fyrir framsýnt umhverfisstarf og Guðrún G. Bergmann, setti átakið. Taktu þátt í grænu umræðunni [...]
Kringlan sparar 5.500 tré
Grænn apríl hófst í Kringlunni í dag. Gestir og gangandi kynntu sér átakið, en í Kringluna mættu þátttakendur í Grænum apríl og kynntu græna vöru og þjónustu. Það er vel við hæfi að hefja átakið í Kringlunni, því þar ræður fólk sem hugsar um umhverfið. Kringlan er t.d. fyrsta verslunarmiðstöðin á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gestir [...]
Samgöngusamningur er allra hagur
Við höfum sniðið umhverfið okkar að einkabílnum. Það kostar samfélagið að halda slíku úti, til dæmis með uppsetningu bílastæða.
Jarðarstundin tókst vel
Jarðarstundin heppnaðist mjög vel í miðborg Reykjavíkur. Götuljósin í miðborginni voru ekki kveikt fyrr en 21.35. Öll lýsing var takmörkuð og slökkt var á nokkrum áberandi byggingum sem iðulega eru upplýstar.
Bílaleiga með ISO vottun
Bílaleiga Akureyrar er fyrsta og eina bílaleigan á Íslandi til þess að hljóta vottun samkvæmt alþjóðlega gæðastjórnunarstaðlinum ÍST ISO 9001 og umhverfisstjórnunarstaðlinum ÍST ISO 14001 en vottun á starfsstöðinni í Reykjavík og í Keflavík var staðfest þann 13.01.2010.
Stolt af umhverfisvinnunni
„Starfsmenn Reykjavík Natura eru stoltir af því að undanfarið ár hefur undirbúningsvinna átt sér stað til þess að innleiða umhverfistaðalinn ISO 14001,“ segir Sólborg Steinþórsdóttir hótelstjóri. „Undirbúningsvinnunni fer senn að ljúka en vottunin nær yfir stefnumótum, markmiðasetningu, framkvæmd og eftirlit allra umhvefisþátta sem fyrirtækið getur stýrt eða haft áhrif á.
Jarðarstund í IKEA
IKEA er stuðningsaðili Jarðarstundar, Earth Hour á heimsvísu.
Af því tilefni vekja starfsmenn verslunarinnar á Íslandi athygli á átakinu og gefa meðal annars
kerti til þeirra sem leggja leið sína i verslunina, laugardaginn 31. mars, 2012.
Grand Hótel Reykjavík svansvottað
Stærsta ráðstefnuhótel landsins, Grand Hótel Reykjavík, hlaut í dag vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.
Svansvottað Kaffitár
Kaffihús Kaffitárs fengu Svansvottun í maí 2010 en síðan þá hefur notkun götumála minnkað mikið, sem er mikilvægt, því kaffihús í heiminum bera ábyrgð á fleiri hundruð tonnum af úrgangi.
Grænn apríl í Sölku
Bókaútgáfan Salka leggur áherslu á bækur sem stuðla að heilbrigði og bættri umgengni við náttúruna og er þáttakandi í átakinu GRÆNN APRÍL.
Græn bílalán Ergo
Brynjólfur Snorrason, ráðgjafi hjá Ergo leiðir okkur í allan sannleik um græn bílalán Ergo, bæði
til nýrra og eldri bíla.
Ergo, sem er fjármögnunardeild Íslandsbanka, er stolt að hafa verið fyrst til að kynna græn
bílalán á íslenskum markaði. Grænu bílalánin hafa hlotið frábærar viðtökur og margir nýtt sér
þau.
Ergo í grænu umhverfi
Ásthildur Kristjánsdóttir, forstöðumaður Ergo, segir frá því að við nafnabreytingu í Ergo sumarið 2011 var ekki bara lögð áhersla á græna stefnu í bílafjármögnun heldur einnig grænar áherslur hjá félaginu sjálfu. Var það haft að leiðarljósi við flutning starfseminnar á Suðurlandsbraut 14 og í vöruþróun félagsins.
GRÆNIR HÆLAR í samvinnu við EarthCheck
Stutt er síðan GRÆNIR HÆLAR tóku að sér að vera umboðsaðilar EarthCheck á Íslandi, en eigandi fyrirtækisins Guðrún Bergmann hefur þó verið tengd þessu umhverfisvottunarmerki allt frá árinu 1999, meðan það enn hét Green Globe.
Frumkvöðlar á Metanbíl
Þegar síðustu hækkanir á eldsneyti eru hafðar í huga er um að gera að kanna allar leiðir til sparnaðar og ekki sakar að geta bætt andrúmsloftið í leiðinni. Það er virkilega vit í því að aka á metani og velja að nota peningana í eitthvað skemmtilegra.
Metanorka kortleggur Ísland
Metanorka vinnur að kortlagningu á helstu möguleikum metanvinnslu úr lífrænu afganshráefni á Íslandi og er reiknað með að niðurstöður liggi fyrir nú í vor.
Hótel Hellnar, platinum
Hótel Hellnar gekk til liðs við umhverfisvottunarsamtökin Green Globe árið 2000 og hlaut vottun frá þeim árið 2002, en nafni Green Globe var fyrir nokkru breytt í EarthCheck. Hótelið er tekið úr árlega og við úttekt á árinu 2012 er gert ráð fyrir að það hljóti Platinum vottun frá EarthCheck, fyrst allra hótela í Evrópu, en það hljóta þau fyrirtæki sem hafa verið vottuð í 10 ár.
Sesseljuhús. Hjartað slær í takt við umhverfið
Sesseljuhús umhverfissetur er fræðslusetur um umhverfismál og sýningarhús um sjálfbærar byggingar. Sesseljuhús er staðsett í hjarta Suðurlands, að Sólheimum í Grímsnesi og þar fer fram alhliða fræðsla um umhverfismál.
Hvað er EarthCheck?
Grænir Hælar eru umboðsaðili Earth Check á Íslandi. EarthCheck eru viðurkennd vottunarsamtök með öfluga ástralska háskóla sem bakhjarla. Þau eru einu samtökin sem fram til þessa hafa umhverfisvottað starfsemi sveitarfélaga en þau votta einnig starfsemi fyrirtækja. Samtökin byggja á hugmyndafræði Staðardagskrár 21 um ábyrga stjórnun og sjálfbæra þróun.








