Hvar viltu vera?
Tryggur viðskiptavinur
Dagur Jarðar 2013
DAGUR JARÐAR 2013
Grænn mánuður framundan
Grænn Apríl er hvatning til allra sem selja umhverfisvæna vöru, þjónustu og þekkingu að koma henni á framfæri við neytendur, svo þeir geti í framtíðinni valið grænni kostinn.
Aprílskógar
Aprílskógar er söfnunarverkefni Græns Apríls fyrir skógrækt annarsvegar fyrir grisjun lerkiskógsins við Bændaskóga á Austurlandi og hinsvegar fyrir plöntun trjáa í Skorradal. Hægt er að styrkja verkefnið með því að hringja eða senda sms í síma 901 5010 fyrir 1.000 kr., 901 5020 fyrir 2.000 kr. og 901 5030 fyrir 3.000 kr.
Viljum við vakna?
Grænn Apríl snýst um að vekja fólk til vitundar um það sem það gerir daglega. Lífsstíll þess og almennir lifnaðarhættir hafa áhrif á umhverfið og úr þeim áhrifum má draga.
Fyrsti græni liturinn
Hótel Hellnar sýnir ábyrgð gagnvart náttúrunni og er fyrsta evrópska hótelið til að hljóta Platinum vottun hjá EarthCheck og það nítjánda í heiminum.
Aprílskógar 2013
Ef þú kaupir þér BAGGU-poka í Grænum Apríl ertu að styrkja skógræktarverkefnið APRÍLSKÓGAR 2013. Tíu krónur af hverjum seldum poka renna til söfnunarinnar.
Verðlaunahafar í Facebook leiknum
Listi yfir verðlaunahafa í Facebook leik Græns apríl 2012.
Reykjavíkurborg sækir ruslið!
Á sunnudag, Degi jarðar, þegar við fjölmennum út á strætim, torg og bersvæði borgarinnar kl.12.30 – eru bæði Sorpa og starfsmenn hreinsunardeildarinnar á vaktinni.
Einn svartur ruslapoki
Grænn apríl skorar á alla Reykvíkinga að fara út með einn svartan ruslapoka og fylla hann af drasli og rusli, em er að finna í næsta nágrenni. Fyllum pokann og tökum til í borginni okkar.
Börnin og býflugurnar
Í Fjölskyldu og húsdýragarðinum er margt um að vera á sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 19. apríl.
Grænt skrifstofuhald
Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar eru áhugaverð fyrir þau fyrirtæki innan borgarinnar, sem ekki hafa þegar skráð sig í verkefnið, fyrir birgja borgarinnar og önnur fyrirtæki, sem vilja stíga fyrstu grænu skrefin í skrifstofuhaldi sínu.
Samtök Lífrænna neytenda – aðalfundur
Fyrsti aðalfundur Samtaka lífrænna neytenda verður haldinn laugardaginn 14. apríl, kl. 14:00 – 17:00, í Reykjavíkurakademíunni, Hringbraut 121, 101 Reykjavík (JL húsinu). Fundurinn er öllum opinn. Þeir sem ekki hafa þegar skráð sig í samtökin munu geta gert það á staðnum en einnig er hægt að skrá sig á heimasíðu samtakanna www.lifraen.is
Græn upplýsingatækni
Nýherji býður til morgunverðarfundar um græna upplýsingatækni í ráðstefnusal félagsins í Borgartúni í fyrramálið, miðvikudaginn 11. apríl. Morgunverðarfundurinn hefst kl. 08:30 og lýkur kl. 10:40. Margir góðir fyrirlesarar taka til máls og er um að gera að mæta og skoða áhrif upplýsingatækni á umhverfið og lausnir, sem þar gætu falist.
Keyrum saman
Á vefnum www.bilfar.is er hægt að skoða hvað verkefnið samnýting bifreiða gengur út á en þar er unnð út frá forsendum bættra og grænni samgangna og umhverfis.
9 leiðir til lífsorku
Salka gefur út nýja bók með metsöluhöfundinum Þorbjörgu Hafsteinsdóttur.
Af því tilefni efnir Lifandi markaður til útgáfugleði fimmtudaginn 12. apríl, í Borgartúni
24.
Græni Skjárinn
Skjárinn tekur þátt í Grænum apríl og sendir út Græna herinn okkar. Þetta eru “örþættir” sem sýndir eru mánudaga til föstudaga allan aprílmánuð í opinni dagskrá á undan American Funniest Homevideos, sem fer í loftið um kl. 18.
Græna Séð og heyrt
Séð og heyrt er skærgrænt í aprílmánuði. Toppurinn á blaðinu, sem að öllu jöfnu er rauður er nú grænn til að minna á átakið.
Kringlan sparar 5.500 tré
Grænn apríl hófst í Kringlunni í dag. Gestir og gangandi kynntu sér átakið, en í Kringluna mættu þátttakendur í Grænum apríl og kynntu græna vöru og þjónustu. Það er vel við hæfi að hefja átakið í Kringlunni, því þar ræður fólk sem hugsar um umhverfið. Kringlan er t.d. fyrsta verslunarmiðstöðin á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gestir [...]
Jarðarstundin tókst vel
Jarðarstundin heppnaðist mjög vel í miðborg Reykjavíkur. Götuljósin í miðborginni voru ekki kveikt fyrr en 21.35. Öll lýsing var takmörkuð og slökkt var á nokkrum áberandi byggingum sem iðulega eru upplýstar.
Jarðarstund í IKEA
IKEA er stuðningsaðili Jarðarstundar, Earth Hour á heimsvísu.
Af því tilefni vekja starfsmenn verslunarinnar á Íslandi athygli á átakinu og gefa meðal
annars
kerti til þeirra sem leggja leið sína i verslunina, laugardaginn 31. mars, 2012.
Grand Hótel Reykjavík svansvottað
Stærsta ráðstefnuhótel landsins, Grand Hótel Reykjavík, hlaut í dag vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.
Flottir flokkunarpokar
Nýlega rakst Grænn apríl á frábæra lausn fyrir þá sem vilja flokka heima og eins og svo oft áður er IKEA með lausnina.
Berðu eiturefni á þig?
Skoðaðu lista yfir þau efni, sem þú ættir að forðast í snyrti- og hárvörum. Engan langar að eitra fyrir sig eða sínum.
Eitrum við óafvitandi fyrir börnin okkar?
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur skrifaði greina á bloggi sínu fyrir skömmu, þar sem skoðað er samband ofvirkni í börnum og litarefna sem eru í gotteríi. Þar birtir hann einnig lista yfir algengustu efnin, sem ætti ekki að gefa börnum ef maður vill þeim gott.
Grænir vængir
Stundum er styttra í lausnirnar en við reiknum með. Útblástur frá flugflota heimsins hefur verið mikill höfuðverkur og margir varla reiknað með að geta í náinni framtíð flogið á milli landshluta, hvað þá yfir úthöfin á lífrænu eldsneyti.
Borgaðu minna og bættu lífskjörin
Borgaðu minna fyrir rafmagnið og bættu lífskjörin. Á heimasíðu Orkuveitunnar er hægt að finna reiknivélar til að reikna út orkunotkun og komast að skemmtilegri niðurstöðu.
Tjekklisti hreinsiefnanna
Það að uppþvottalögurinn freyði vel segir EKKERT til um virkni hans. Margir framleiðendur hreinsiefna nota ótæpilega mikið af freyðiefnum, en þau auka virknina ekkert. Þau eru hins vegar skaðleg umhverfinu. Hér getur þú orðið fróðari um hreinsiefni heimilisins.
Grænn lífsstíll – ekki flókið
Mörgum vex í augum að taka upp græna lífshætti og hafa á tilfinningunni að það feli í sér gagngeran umsnúning á öllu þeirra lífi. Vissulega eru margir sem kjósa að breyta lífi sínu með afgerandi hætti og taka alfarið upp græna og vistvæna stefnu. Hins vegar er afar mikilvægt að hafa í huga að ekki er nauðsynlegt að taka slíkum stakkaskiptum. Gamla máltakið margt smátt gerir eitt stórt á einkar vel við þegar kemur að umhverfisvænni hugsunarhætti og lífsstíl.
Farfuglaheimilið í Laugardal opnar Grænt hringborð
Upplýsingarveita um græna kosti í ferðamennsku opnaði í dag á Farfuglaheimilinu í
Laugardal. Að Græna hringborðinu standa Farfuglaheimilið í samstarfi við verkefnið
Lifandi vegvísa á Höfuðborgarstofu, en þar geta ferðamenn og heimafólk fengið
upplýsingar um græna vöru og þjónustu alla daga í sumar.
Skógrækt í Selfjalli
Árið 2009 var gerður samningur milli Kópavogsbæjar, Skógræktarfélags Kópavogs og Skógræktarfélags Íslands um skógrækt og uppgræðslu í Selfjalli í Lækjarbotnum. Alls er svæðið um 143 ha. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi yfir til ársins 2020 og að árlega verði gróðursettar liðlega 12.000 trjáplöntur á svæðinu og uppgræðsla nái til um 6 ha lands á ári hverju.
Chevrolet Volt valinn grænasti bill heims 2011
Rafbíllinn Chevrolet Volt gerir það ekki endasleppt. Nýlega var hann valinn “World Green Car of the Year 2011” á alþjóðlegu bílasýningunni í New York. Íslendingum mun standa til boða Chevrolet Volt síðar á árinu. Bílabúð Benna er umboðsaðili Chevrolet á Íslandi.
Farfuglaheimilin í Reykjavík hljóta Kuðunginn
Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins, Kuðungurinn, var veitt í 16. sinn í dag og kom að þessu sinni í hlut Farfuglaheimilanna í Reykjavík fyrir framlag sitt til umhverfismála á síðastliðnu ári. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, afhenti verðlaunin við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag og sagði Farfuglaheimilin í Reykjavík vel að verðlaununum komin.
Olís tekur við rafhlöðum og kertaafgöngum
Á þjónustustöðvum Olís er hægt að fá ókeypis box undir rafhlöður og taka þjónustustöðvarnar við ónýtum rafhlöðum og rafgeymum þér að kostnaðarlausu. Olís tekur einnig við kertaafgöngum, sem eru endurnýttir af starfsfólki Sólheima í Grímsnesi.
Náðu þér í ókeypis rafhlöðukassa hjá Olís
Það kostar ekkert að skila rafhlöðum til úrvinnslu. Því miður er allt of litlu magni af rafhlöðum skilað árlega. Af þeim 161,5 tonnum rafhlaðna sem flutt voru inn til landsins á árinu 2005 var aðeins rúmlega 37 tonnum skilað til úrvinnslu. Þetta eru ekki nema 21% af öllum seldum rafhlöðum hér á landi. Þetta þýðir að hvorki meira né minna en rúm 124 tonn af rafhlöðum, 79%, hafa farið beint í ruslið og því verið urðuð með öðru sorpi.
Ræktunarstöðin fær viðurkenningu
Garðyrkjuverðlaunin eru rós í hnappagat Ræktunarstöðvar Reykjavíkur sem valin var verknámsstaður ársins 2011 á hátíð um helgina. Garðyrkjufræðingum stöðvarinnar var sérstaklega hrósað fyrir fagmennsku og að veita nemendum fjölbreytta og góða leiðsögn. Súsanna Flygenring ræktunarstjóri tók við verðlaununum fyrir hönd stöðvarinnar.
Kennum börnum grænan lífsstíl
Það er afar mikilvægt að kenna börnum snemma að umgangast náttúruna og bera virðingu fyrir umhverfi sínu. Ef vel tekst til rækta börnin ósjálfrátt með sér sterka umhverfisvitund og stuðla jafnframt að því að foreldrar og fjölskyldan öll taki upp grænan lífstíl. Þannig er von um að til verði ný kynslóð með grænni viðhorf sem leiðir til annars gildismats og bjartari framtíðarhorfa.
Sjórinn þarf enn að taka við
Í góðri grein í Lesbók Morgunblaðsins í gær fjallar Sigmar B. Hauksson um vatn og yfirvofandi vatnsskort í heiminum. Grein hans ber heitið „Lengi tekur sjórinn við“ og fjallar um mikilvægi þess að vernda bæði ferskvatn og saltvatn, en hvorttveggja er mikilvægt þar sem gert er ráð fyrir að vatnsþörf mannsins aukist um 44% á næstu tuttugu árum.
Útikennslustofur í Kópavogi
Kópavogsbær hefur á undanförnum árum byggt útistofur og námssvæði í göngufæri við skóla bæjarins. Markmiðið er að fjölga slíkum svæðum á komandi árum. Markmiðið er að öll skólabörn í Kópavog, hvort sem um er að ræða börn í leikskóla eða grunnskóla hafi aðgang að útistofu í göngufæri frá skólanum sínum.
Síðasti snúningur
Nagladekk eru bönnuð á götum Reykjavíkur eftir 15. apríl. Engin ástæða er til að vera á nöglum í borginni enda hefur slíkum hjólbörðum stórlega fækkað á liðnum árum. 34% bifreiða reyndust á nöglum í marsmánuði.
Græn bylting í bílaumferð
Chevrolet Volt hefur verið valinn bíll ársins 2011 á stærsta markaði heims, Norður Ameríku. Valið markar tímamót því Chevrolet Volt er fyrsti rafbíllinn sem hampar þessum virta titli.
Stórt skref fyrir fuglana á Tjörninni
Í dag undirrituðu borgarstjórinn í Reykjavík, rektor Háskóla Íslands og forstöðumaður Norræna hússins erindisbréf um verkefni um friðland í Vatnsmýri.
Dýrmætur efniviður
Hvalfjarðarsveit markaði þá stefnu á haustmánuðum 2010 að flokka sorp. Í nóvember var byrjað á svo nefndu þriggja tunnu kerfi þannig að núna er allt lífrænt sorp flokkað frá, flokkað í endurvinnslutunnu og svo fer í þriðju tunnuna það sem ekki er hægt að vinna og er urðað. Hvalfjarðarsveit sparar urðunarkostnað í Fíflholtum. Með aukinni flokkun er stefnt að lækkun á urðunarkostnaði en að auki að ná frá þeim markmiðum sem okkur eru sett varðandi urðun til framtíðar.
Moltugerð Tjarnarselsbarna
Leikskólabörnin í Tjarnarseli dreifa moltu á opin svæði Reykjanesbæjar í tilefni af ,,grænum apríl“.
SEEDS pakkar góðum ráðum Náttúrunnar
Á undanförnum dögum hafa átta sjálfboðaliðar frá SEEDS samtökunum unnið fyrir Náttúruna að því að flokka „Náttúruspil – 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið“ í stokka og kassa til dreifingar en Náttúran.is hefur í hyggju að dreifa 150 þúsund góðum ráðum í Reykjavík og á landsbyggðinni í tilefni af Grænum apríl.
Leikskólabörn læra um náttúruna í grænum apríl
Reykjavíkurborg leggur áherslu á grænu málin í aprílmánuði með því að taka þátt í Evrópskum orkudögum og Grænum apríl. Leikskólabörn voru í Laugardalnum í morgun, 6. apríl, í náttúrukennslu og á morgun verður málþing um græn ferðalög.
Græna orkan
Græna orkan er heiti á klasasamstarfi um orkuskipti sem miðar að því að auka hlut visthæfra innlendra orkugjafa í samgöngum á kostnað innflutts kolefnaeldsneytis. Iðnaðarráðherra hafði forgöngu um verkefnið sem undirbúið var í samstarfi við önnur ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög og hefur skipað verkefnisstjórn til að þróa samstarfið áfram og fá fleiri þátttakendur og samstarfsaðila til liðs við Grænu orkuna.
Umhverfisstefna leikskóla
Leikskólinn í Stykkishólmi hefur í skólastefnu sinni áætlun sem miðar að því að auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs.
Umhverfið í tísku
Það er hreinlega í tísku að vera umhverfisvænn, svo einfalt er það. Meðal þeirra þekktu einstaklinga í tískuheiminum, sem vilja vekja athygli á því hvað er hægt að framleiða úr endurunnu efni er engin önnur en Hendrikka Waage.
Ekkert aprílgabb
Grænn apríl hófst formlega með viðburði í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hélt stutta tölu og klippti á borða til að marka fyrsta skrefið inn í vorið og grænan fókus í apríl.
Forskot Háteigsskóla á Grænan apríl
Hópur frá Háteigsskóla tók smá forskot á Grænan apríl í skólanum í dag. Hópurinn heimsótti vistvænu prentsmiðjuna GuðjónÓ og kynnti sér pappír og endurvinnslu á pappír.
Þátttakendur í Grænum apríl á Græna kortinu
Þátttakendur í Grænum apríl hafa nú fengið sérstakan flokk á Græna Íslandskortinu á
natturan.is.
Grænkortakerfið/Green Map® System, er alþjóðlegt flokkunarkerfi sem skilgreinir
aðila/fyrirbæri
sem talist geta hluti af grænu hagkerfi, menningu og náttúrunni. Flokkarnir hér á landi eru
100
að tölu og skráðir aðilar og fyrirbæri um 3.000.
Umhverfisvæn eftirspurn ber árangur
Þegar Snæfellsbær stefndi í vottun umhverfisstjórnunarkerfisins Green Globe varð til þörf fyrir að aðkeyptar vörur yrðu að vera merktar viðurkenndu umhverfismerki. Hér er lítil dæmisaga úr raunveruleikanum sem fjallar um samvinnu, sem ber árangur.
Hótel Rauðaskriða í Aðaldal fær Svansvottun
Hótel Rauðaskriða í Aðaldal hefur nú fengið vottun Norræna Umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Strangar kröfur Svansins tryggja að hótelið er í fremstu röð varðandi lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa frá starfseminni. Rauðaskriða er eina hótelið á Íslandi með Svansvottun.
Eyðist sem af er tekið
Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona og fyrrv. formaður Lífs og lands veltir upp áleitinni spurningu um samskipti okkar við blómjurtirnar sem tíndar eru í snyrtivöruframleiðslu úr íslenskum villijurtum.
Joð gegn geislavirkni
Geislavirkni safnast upp í líkamanum yfir lengri tíma. Öll verðum við fyrir einhverri geislamengun úr umhverfi okkar, en mikilvægt er að verja líkamann fyrir slíku með því að tryggja að joðbirgðir hans séu nægar. Séu þær það getur líkaminn varið sig gegn geislavirkni eins og nú er í Japan og getur hugsanlega dreift sér víðar. Því er gott að tryggja að líkaminn hafi alltaf nægilegt magn af joði.
Grænt Google
Hjá Google er fólk fyrir löngu búið að finna út úr því að það er bæði hipp, kúl og hagkvæmt að huga að umhverfisþáttum í rekstrinum. Að velja græna kostinn sýnir sig í jákvæðum tölum á hinum elskuðu efnahagsreikningum og fyrir fyrirtæki, sem vinnur sig inn í framtíðina, er jú eins gott að það sé einhver framtíð að horfa til.
Kínverjar með áhyggjur af umhverfi og loftslagi
Í grein eftir Andrew Jacobs, sem birt var nýlega í New York Times, fjallar hann um óvanalega og blákalda viðvörun frá umhverfisráðherra Kína um afleiðingar þess taumlausa efnahagsvaxtar sem verið hefur á andrúmsloft landsins, vatn og jarðveg. Þar sagði meðal annars að ef haldið væri áfram á núverandi braut myndi það geta heft langtíma efnahagsþróun og leitt til óstöðugleika í samfélaginu.
Samtök lífrænna neytenda stofnuð
Troðfullt var út úr dyrum á stofnfundi Samtaka lífrænna neytenda í Norræna húsinu í gærkvöldi. Undirbúningur að stofnun samtakanna hefur staðið yfir í nokkra mánuði.
Vissir þú að…
Það er skemmtileg dægrastytting að rýna í tölfræði, sem tengist lífsháttum okkar og umhverfi. Hér eru nokkrar blákaldar staðreyndir.
Útópíuframtíð á Haiti
Vincent Callebaut hefur kynnt nýstárlegar tillögur að enduruppbyggingu á Haiti, þar sem umhverfi og sjálfbærni eru útganspunktur.
Hinn ósýnilegi óvinur
Fiskar sem synda um í fiskabúri með óhreinu vatni munu að endingu sýkjast og deyja, sé ekki skipt um vatn. Við sem „syndum“ um í menguðum lofthjúpi virðumst ekki skilja að okkar bíða sömu örlög og fiskanna, þ.e. að veikjast og deyja, hugsanlega fyrr en þyrfti að vera vegna þeirrar mengunar sem við öndum að okkur.
YouSendIt og umhverfið
Með því að nota YouSendIt hafa fyrirtæki komið í veg fyrir losun á 409.324 tonnum af koltvísýringi á síðasta ári og sóun á rúmlega 10 milljón lítrum af vatni.
Græðandi spor
Hollenska fyrirtækið OAT, með hönnuðinn Christiaan Maats, í broddi fylkingar, kynnti á tískuvikunni í Amsterdam í síðustu viku, skó sem má telja með þeim umhverfisvænni.
Svanurinn
Svanurinn er eitt þekktasta og útbreiddasta umhverfismerkið á Norðurlöndunum. Nýlegar kannanir sýna að milli 75-97% fólks á Norðulöndum þekkja Svaninn og að meðaltali 74% segist bera mikið traust til merkisins.
Ítalir banna plastpoka
Bann við notkun einnota plastpoka tók gildi á Ítalíu nú um áramót. Ítalir nota að meðaltali 20 milljarða einnota plastpoka á ári hverju og meðalítalinn notar – og hendir – 400 plastpokum á ári.








