Upplýsingar
HVAÐ ER GRÆNN APRÍL?
Lumar þú á grænni þjónustu, vöru og/eða þekkingu, sem allt of fáir vita um? Þá er Grænn apríl eitthvað fyrir þig.
GRÆNN APRÍL er verkefni sem hópur áhugafólks um umhverfismál hrinti í framkvæmd í fyrsta sinn árið 2011. Markmiðið er að fá ríkisstjórnina, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem er græn og umhverfisvæn og styður við sjálfbæra framtíð á Íslandi.
Með sameinuðu átaki er ætlunin að gera umhverfisumræðuna skemmtilega, líflega og kúl fyrir alla Íslendinga. Verkefnið er opið öllum sem vilja taka þátt í því. Hafðu einfaldlega samband við Guðrúnu G. Bergmann, netfang: gudrun@graennapril.is.
SKRÁÐU ÞIG og vertu með í GRÆNUM APRÍL!
TILGANGUR
Tilgangur félagsins er að vinna að því að gera aprílmánuð að grænum mánuði á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að kynna og bjóða upp á upplýsingar um þekkingu, vöru og þjónustu sem telst vera græn og umhverfisvæn.
- Að vekja landsmenn til frekari vitundar um að við þurfum að gæta að náttúrunni og umhverfi okkar.
- Að hvetja aðila sem selja þekkingu, vöru eða þjónustu sem er annað hvort umhverfisvottuð, af Fair Trade uppruna eða telst umhverfisvæn á einn eða annan máta, til að kynna sig og starf sitt sérstaklega í apríl.
- Að hvetja til umræðu um mikilvæg skref sem taka verður til að vernda náttúru landsins svo að komandi kynslóðir fái notið hennar á sama hátt og við njótum hennar í dag.
Stjórn félagsins skipa:
Guðrún G. Bergmann, gudrun@graennapril.is
Valgerður Matthíasdóttir, vala@graennapril.is
Maríanna Friðjónsdóttir, admin@graennapril.is
KYNNING Á GRÆNUM APRÍL
Stofnfélagar:
1. Guðrún G. Bergmann
2. Maríanna Friðjónsdóttir
3. Sólveig Eiríksdóttir
4. Valgerður Matthíasdóttir
5. A. Agnes Gunnarsdóttir
6. Dofri Hermannsson
Félagið Grænn apríl var stofnað þann 20. janúar, 2011 af hópi fólks, sem hefur áhuga á umhverfismálum með það að markmiði að hvetja ríkisstjórnina, sveitarstjórnir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að vinna saman að því að gera APRÍL að GRÆNUM MÁNUÐI.
Sá mánuður var meðal annars valinn vegna þess að Dagur jarðar er haldinn hátíðlegur víða um heim í apríl og hinn íslenski dagur umhverfisins er einnig í apríl ár hvert. Jafnframt er apríl sá mánuður þar sem landið er að byrja að vakna af vetrardvala og því tilvalið að takast á hendur verkefni sem snúa að umhverfinu.
GRÆNN APRÍL hvetur alla þátttakendur í þessu átaki til að nýta aprílmánuð til að hrinda í framkvæmd umhverfisvænum verkefnum, kynna þau umhverfisverkefni sem þegar eru í framkvæmd og kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem snýr að grænni og sjálfbærri framtíð.
Samtökin halda utan um vefsíðuna www.graennapril.is, framleiðir sögur af þátttakendum á lifandi hátt í formi fjölda myndbanda, kynnir viðburði, vöru, þekkingu og þjónustu á heimasíðunni og samfélagsmiðlum átaksins. Rík áhersla er lögð á víðtækt samstarf við fjölmiðla um að kynna og flytja fréttir af þeim verkefnum og viðburðum sem eru á dagskrá í GRÆNUM APRÍL.
GRÆNN APRÍL er lifandi átak áhugafólks um umhverfisvernd, grænt atvinnulíf og leiðtogamöguleika Íslands á sviði sjálfbærni. Við hvetjum því alla til að taka þátt í verkefninu og sýna hvaða þekkingu, vöru og þjónustu þeir bjóða upp á, sem getur stuðlað að sjálfbæru samfélagi. Með því að sameina kraftana má setja grænar framfarir í fókus í einum mánuði og kynna þannig fyrir almenningi öll þau mikilvægu grænu verkefni, vörur og þjónustu sem í boði eru á Íslandi í dag.
Við væntum þess að þú og þitt sveitarfélag, fyrirtæki eða félagasamtök sjái sér fært að taka þátt og látir vita í auglýsingum og kynningum að þú sért þátttakandi í GRÆNUM APRÍL.









